Newsflash


Meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga. Fossaleyni 17, 112 Reykjavík. Sími: 530 8800 – Bréfsími: 530 8801
Samstarf um Þjálfun í Fjölskyldu -ART Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Meðferðardeild Stuðla hefur gert samstarfssamning við Bjarna Bjarnason sérfræðing í ART (Agression Replacement Training) um þjálfun starfsfólks í Fjölskyldu –ART. Bjarni mun mennta starfsfólk eftir aðferðum Robert Calame frá Kanada sem er brautryðjandi í Fölskyldu-ART. Þetta er liður í því að auka þjónustu við foreldra og samhæfa betur þann árangur sem næst með félagsfærniþjálfun barns í meðferð við þarfir fjölskyldunnar. Þjálfunin hefst í mars.

 

Nánar...
 
Öryggisnámskeið fyrir starfsfólk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Don Gerritsen sérfræðingur í öryggismálum hélt námskeið fyrir alla starfsmenn Stuðla í febrúar. Þar fór Don yfir allar reglur og bestu aðferðir sem þekkjast við þvingunaraðgerðir, valdbeitingu, fíkniefnaleit og líkamsleit. Einnig var fjallað um árekstrarstjórnun og aðferðir til að nálgast erfiðar aðstæður sem skapast á Stuðlum.

Don er yfirmaður öryggismála hjá Isavia ohf. og fyrrverandi yfirmaður á Litla Hrauni. Einnig hefur hann þjálfað lögreglu og fangaverði. Hann starfaði einnig sem ráðgjafi í meðferð ungmenna í mörg ár. Don er einn af mörgum fagmönnum sem Stuðlar eru í samstarfi við varðandi öryggi og aðferðir í meðferð.
Nánar...
 
ART -ÞJÁLFUN Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

ART eða Aggression Replacement Training hefur verið nýtt í meðferð á Stuðlum frá árinu 2007. Þá fengu alllir starfsmenn Stuðla þjálfun frá alþjóðasamtökum ICART. Síðan þá hafa nýir starfsmenn á Stuðlum fengið þjálfun í ART kennslu. Einnig hefur deildarstjóri meðferðardeildar verið í samstarfi við Bjarna Bjarnason verkefnistjóra ART-Suðurland. Meira er hægt að fræðast um ART undir lið meðferðardeildar á heimasíðu Stuðla, einnig er hægt að kynna sér betur ART á Suðurlandi.

 

Nánar...
 
Umfjöllun um Stuðla á Stöð 2 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Þann 17. maí var umfjöllun um Stuðla í Íslandi í dag á Stöð 2. Fjallað var um starfsemina  og tekið viðtal við nokkra starfsmenn. Þar var einnig vitnað í nokkra af þeim unglingum sem voru hér þegar myndatökumenn komu á staðinn. Hægt er að skoða myndbandið hér.

 

Nánar...